expand_contentStyrkir úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka eru veittir einu sinni á ári. Við viljum vera hreyfiafl til góðra verka í samfélaginu og veitum styrki til verkefna sem styðja við þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á og má sjá hér að neðan. Að þessu sinni eru umsækjendur einnig hvattir til að líta sérstaklega til undirmarkmiðanna og tilgreina tengingar við þau í umsóknarferlinu. Þetta er til viðbótar við hefðbundin skilyrði sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel.
Bæði fyrirtækjum og einstaklingum er heimilt að sækja um styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Umsækjendur eru beðnir um að svara örfáum spurningum ásamt því að skila inn 10-15 glæru kynningu sem gerir hugmyndinni góð skil. Kynningin skal vera á pdf formi og þurfa eftirfarandi atriði að koma fram:
1. Titill verkefnis og stutt greinargóð lýsing - Verkefnið útlistað í 1-2 setningum.
2. Vandamálið - Hvaða vandamál er verið að leysa?
3. Lausnin - Í hverju felst lausnin?
4. Teymið - Hver standa að verkefninu? Framkvæmdarteymið en einnig eignarhald og rekstrarform.
5. Stutt umfjöllun, ef við á, um fyrri verkefni umsækjanda, styrkveitingar tengdar þeim og afdrif verkefnis.
6. Markaðurinn - Fyrir hvern er lausnin/varan?
7. Samkeppnin - Hvaða aðrar lausnir eru á markaðinum?
8. Samkeppnisforskotið - Hvað gerir þessa lausn betri en aðrar lausnir, hvert er samkeppnisforskotið? Hvaða tengingar og samstarf gera það líklegra að verkefnið hafi tilætluð áhrif?
9. Hvernig styður verkefnið við þau heimsmarkmið sem Íslandsbanki hefur valið að leggja sérstaka áherslu á, en umsækjendur eru hvattir til að líta sérstaklega til undirmarkmiðanna og tilgreina tengingar við þau. Hver eru jákvæð samfélagsleg áhrif/útkoma verkefnisins?
10. Kostnaðar-, tekju- og tímaáætlun - gróf áætlun um kostnað, tekjur, aðra fjármögnun og einföld tímalína. Ef verkefnið hefur verið styrkt af öðrum, vinsamlegast tilgreinið þá styrki og hvernig þeim hefur verið eða verður ráðstafað.
11. Ráðstöfun og áhrif styrkveitingar - Hvernig mun styrkurinn nýtast og auka framgöngu verkefnisins?
12. Skila með ársreikningi ef við á
Heimsmarkmiðin fjögur sem sjóðurinn hefur valið að styðja sérstaklega við má finna hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/heimsmarkmid-sameinudu-thjodana
Undirmarkmið má skoða nánar á https://www.heimsmarkmidin.is/forsida/heimsmarkmidin/
- - - - - - - - - -
Stjórn Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka hefur skipað KLAK - Icelandic Startups sem úthlutunarnefnd, sbr. 4. gr. úthlutunarreglna sjóðsins. Umsóknum verður því deilt með KLAK - Icelandic Startups sem fer yfir þær og gerir tillögur til stjórnar um úthlutun styrkja. Umsækjendur eru hvattir til að virða lengdarmörk og skrifa greinagóða lýsingu á verkefninu.
Beina skal öllum fyrirspurnum í tengslum við umsóknir til úthlutunarnefndar Frumkvöðlasjóðsins í gegnum netfangið frumkvodlasjodur@islandsbanki.is
Umsækjendum er bent á að kynna sér reglur um skattlagningu styrkja og heimildir til frádráttar kostnaðar á heimasíðu Skattsins, www.rsk.is, og persónuverndaryfirlýsingu sjóðsins.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér:
https://www.islandsbanki.is/is/vara/bankinn/frumkvodlasjodur
- - - - - - - - - -
Með því að skila inn umsókn heimilar umsækjandi Íslandsbanka að kanna orðspor umsækjanda og þeirra sem standa að verkefni og tilgreindir eru, skv. lið 4, með almennri orðaleit á veraldarvefnum auk uppflettingar í fjölmiðlavakt Creditinfo. Könnun skal einungis framkvæmd komi umsækjandi til greina sem styrkþegi. Nánar um meðferð persónuupplýsinga má finna í persónuverndaryfirlýsingu sjóðsins.
- - - - - - - - - -
Persónuverndaryfirlýsing Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka:
1. Almennt
Í persónuverndaryfirlýsingu þessari er því lýst hvernig Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka, kt. 670608-1230(sjóðurinn) stendur að vinnslu og varðveislu persónuupplýsinga umsækjenda og styrkþega. Yfirlýsingin gildir eingöngu um einstaklinga en ekki lögaðila. Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (persónuverndarlög).
2. Flokkar persónuupplýsinga og tilgangur
Sjóðurinn safnar eingöngu þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru við framkvæmd umsókna og styrkveitinga í samræmi við reglur sjóðsins. Eftirfarandi eru dæmi um þær upplýsingar sem sjóðurinn safnar í þessum tilgangi:
- Nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Netfang
- Símanúmer
- Mynd
- Kyn
- Opinberar upplýsingar
- Upplýsingar sem umsækjandi kann að veita í umsókn sinni t.d. um menntun og starfsferil
- Upplýsingar sem styrkþegi veitir í skýrslum sínum.
3. Heimild til vinnslu
Sjóðurinn vinnur framangreindar upplýsingar á grundvelli samþykkis og samnings við umsækjendur og styrkþega. Í einhverjum tilvikum kann að vera nauðsynlegt að vinna með persónuupplýsingar á grundvelli lögmætra hagsmuna t.d. þegar notast er við vinnsluaðila eða umsóknir eru bornar undir sérfræðinga á því sviði sem sótt er um, sjá nánar í næsta kafla.
4. Öflun og miðlun persónuupplýsinga
Þær persónuupplýsingar sem sjóðurinn vinnur með berast í flestum tilvikum frá einstaklingnum sjálfum í umsókn, tölvupóstum og í símtölum. Símtöl sem fara fram í gegnum símkerfi Íslandsbanka kunna að vera hljóðrituð. Það geta komið upp aðstæður þar sem nauðsynlegt er að afla upplýsinga frá þriðja aðila t.d. með skoðun í þjóðskrá, í gegnum almenna orðaleit á veraldarvef, með uppflettingu í fjölmiðlavakt Creditinfo og/eða könnun stöðu viðkomandi í vanskilaskrá. Ávallt er þó aflað skriflegs samþykkis frá umsækjanda áður en staða hans í vanskilaskrá er könnuð. Farið er með framangreindar upplýsingar sem trúnaðarmál. Upplýsingarnar eru almennt eingöngu aðgengilegar stjórnarmönnum sjóðsins og úthlutunarnefnd hans nema í sérstökum tilfellum t.d. þegar það er nauðsynlegt að bera umsókn undir sérfræðinga á því sviði sem sótt er um eða með vinnsluaðilum sjóðsins þegar það er nauðsynlegt s.s. skýjaþjónustum og hýsingaraðilum. Ef persónuupplýsingar eru fluttar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið er ávallt gengið úr skugga um að þær séu verndaðar með sama hætti og innan þess. Athugið að sjóðurinn mun birta opinberlega upplýsingar um þau verkefni sem hljóta styrk s.s. lýsingu á verkefninu, nafn þess og mynd af þeim sem að þeim standa.
5. Varðveisla persónuupplýsinga
Umsóknir eru almennt varðveittar í þrjú ár frá móttöku. Upplýsingar um styrkþegar og verkefni eru varðveittar í fimm ár frá umsóknardegi.
6. Öryggi
Upplýsingarnar eru varðveittar í kerfum Íslandsbanka sem hefur innleitt ISO/IEC 27001 staðal um upplýsingaöryggi og hefur gefið út reglur um aðgangstakmarkanir, raunlægt öryggi, öryggi upplýsingakerfa o.fl. Fyllsta öryggis er einnig gætt við alla miðlun upplýsinganna. Sjá nánar um aðgang að upplýsingunum og miðlun þeirra í kafla 4.
7. Réttur einstaklinga
Persónuverndarlög mæla fyrir um ýmis réttindi einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga. Vakin er athygli á að sum þessara réttinda kunna að takmarkast af ýmsum ástæðum en allar beiðnir verða teknar til skoðunar og gerð verður grein fyrir því ef ekki verður hægt að verða við þeim. Tekið skal fram að sjóðnum getur reynst ómögulegt að taka umsókn til meðferðar eða veita styrk nema að vinna þær upplýsingar sem um er beðið. Réttindi þessi eru eftirfarandi:
- Aðgangur að eigin persónuupplýsingum
- Leiðrétting persónuupplýsinga
- Eyðing - Takmörkun á vinnslu
- Flutningsréttur
- Andmælaréttur
- Afturköllun samþykkis
Öllum beiðnum skal beint til frumkvodlasjodur@islandsbanki.is. Skilyrði þess að hægt sé að taka beiðni til skoðunar er að beiðandi sanni á sér deili. Athugasemdum vegna vinnslu persónuupplýsinga hjá sjóðnum er hægt að beina á sama netfang. Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og úrskurðar í ágreiningsmálum á sviði persónuverndar. Hægt er leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sem hér segir: Persónuvernd, Rauðarárstígur 10, 105 Reykjavík postur@personuvernd.is